blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

5.28.2004

http://kubufjolskyldan.blogspot.com/

msn dauði og yahoo upprisa

Því hefur alltaf verið haldið fram ad hálfu gömlu að tölvan og tæki hennar til samskipta við vini sé þad sem heldur félagskvikindinnu lifandi á meðan hún stundar vinnu sína. Marg sinnis hafa verið gerðar tilraunir til að taka msn af henni en hún hefur hrópað upp heróp og sakað viðkomandi um félagslegt morð og dundað sér við ad setja þad inn aftur med ýmsum leiðum. EN EN nú var gamla sigruð í þessarri baráttu og verður ad sætta sig við dauða msn að hennar hálfu. Mikið er þetta einmannalegt fyrir greiið gömlu. Skref tvö var ad koma ser upp nýrri félagsæð við umheiminn sem kerfisstjórinn samþykkir og bendir hun öllum a yahoo slóð sem hefur ringt inn til ykkar í tölvupósti undanfarið.

Dagur hjá dýrinnu

Það nýjasta hja dýrinu mínu er ad stunda yoga! Á hverjum morgni kl 7 situr hun á gólfinnu inni hja ser med krosslagðar lappir og myndar hring med fingrum beggja handa. þannig situr hun i 10 min eða svo. Segist vera endurnærð og fersk eftir þetta allt saman, sem er svo rosaleg tilbreyting þvi yfirleitt er dýrið skapvont og uppstökkt á þessum tíma sólarhrings. Svo tekur skólinn við. Það er búið ad vera voða duglegt ad vinna það upp sem það missti med þvi ad flytjast med gömlu sinni erlendis en sá kraftur virðist nú algerlega horfin með hækkandi sólu. Dýrið nennir ekki ad gera neitt nema leika ser, hlusta a pink og horfa á popptíví. En það slagast i gegnum þessa tima í skólanum svo er stefnan tekin á verslunarmiðstöðinna sem er rétt hja skólanum. Dýrið og vinir hafa nefnilega undanfarna daga gengið á milli húsa og safnað á tombólu fyrir pink disknum! þetta hefur gengið svona dúndur vel ad þau eru komin í full bissnes þarna á stettinni. Til þess ad lífga uppá stemningunna eru dýrið og allur hópurinn með stóra eyrnalokka og rauðan varalit (yfir svona 1/5 af andlitunu!) Þegar gamla kemur og nær i dýrið er þad alltaf of snemma ad þess mati og frekar hallærislegt eitthvað. Gamla verður yfirleitt ad rökræða dýrið uppi farartækið.
Dýrið vill fara á Pink tónleikanna sem verða her í dalnum í sumar og finnst það gersamlega út i hött ad gamla sé ekki á þvi að leyfa þvi að fara. Gamla stendur stundum ráðþrota yfir dýrinnu sínu og ekki getur hun neitað þvi ad henni kvíði bara þó nokkuð fyrir þvi ad dýrið nái unglingsaldri med tilheyrandi skellum.

5.25.2004

Megavika

Þetta er búið ad vera rosaleg vika! Fyrirlesturinn gekk bara vel, þad var ákv. ad setja göginn mín inna uppl.grunninn, þannig eg er sátt. nú er bara ad koma þessu öllu saman yfir á annað format og skella þessum hluta sem er tilbúin inn!! vá.. hvad eg verð ánægð þegar þessum hluta er lokið og eg get hafist handa við næsta svæði.. þetta er búið ad taka sinn tíma..og endurvinnslu.. eftir að gögninn hurfu til letlands i fyrra!!! næst verður tekið fyrir vestur hlutinn af eyjunni.. þannig eg hlakka bara til ad komast í gönguskóna og út!!! eg komst slysalaust fra þessu ollu saman... en þad er kanski ekki hægt ad segja um restinna af deginum. ég fór nefnilega a kynningu á nýrri version á uppl.forriti. þad var svona mikið ´dúndur stuð á mer ad eftir nokkrar lettar veitingar og smá læti þa skellti eg mer i bæinn og rassskellti nokkra af helstu stöðum bæjarinns! Mjög upplífgandi!;)
Svo var ad klára undirbúninginn fyrir brúðkaupið! við vorum med myndasjó og smá læti. Brúðkaupið á laugardaginn var bara fallegt og æðislegt. Gat ekki haldið aftur af mer þegar hun gekk inn gólfið... guð minn góður hvað hun var flott!!!! páll óskar söng i kirkjunni (.. í rauðu! samkv. ósk brúðarinnar ;) ótrúlega smart! ) hann gerði þetta strórkostlega.. enda ekki ad því ad spyrja!!! Veislan og dagurinn var sem sagt frábær. Um kvöldið fór eg sem þriðja hjólið á thorvaldsen, fengum okkur borð sem við samsömuðum okkur við það sem eftir var af kvöldinnu... mest ljómandi!
ég er ad plotta ferð til gömlu minnar... buin ad vera ad safna saman ferðapunktum.. og þetta lítur ágætlega ut! Gamla settið er i uppherslu i hveragerði þannig eg ætla til þeirra um helginna og sannfæra þau um ágæti og nauðsyn þess ad eg og dýrið skellum okkur í nokkra daga! verð ad komast!

5.19.2004

Miðvikudagur

gamla klæddi sig i hvítt ( veit! skítapjakkurinn var ROSALEGA bjartsýn! ) og helt uppá júróvisíon med stæl! talaði svo mikið i partyinu ad hun missti hreinlega af keppninni!!! sá framlag íslendinga.. þad var náð í mig og mer stillt fyrir framan imbann... svo var mín bara farin aftur á spjallið og .. og undarlegt nokk.. allt búið! en þrátt fyrir þessa óheppni mín skemmti eg mer prinsessulega. Kvöldið gekk bara nokkuð vel þrátt fyrir mikið af hvítvíni.. mmmm :)
fréttir dagsins eru hins vegar þær ad eg var ad kaupa mer glæsi vagn.. dúndur flottann rauðan beibí! hann virðist vera tiltölulega heill.. gengur og er med 4 dekk og hurðar þannig allir eru sáttir!
Þar sem eg er ad fara ad halda fyrirlestur eftir 50 min ætti eg nú kanski ad fara ad snúa mer ad þvi!! :S svo eg fari ekki af límingunum...

5.12.2004

Gamla hin mætt

þetta er bara sniðugt.. eftir maraþon hja litlu heilasellunum minum tókst mer þetta :) puff.. held ad vedurstofan se ad drepa mig.. knus